13
HÖRPUSKEL
EFNI
Léttlopi – 50 gr dokkur
A 1420 skuggi
6 (7 8)
Heklunál nr 4
Tölur
HEKLFESTA
10 cm = 2 endurtekningar (1 endurtekning
=skel + 2 FL) + 2 L = 10 cm (endurtekning
= 7 L). Sannreynið heklfestu og skiptið um
nálarstærð ef þarf.
AÐFERÐ
Púðinn er heklaður fram og til baka
rúmlega ummál púðafyllingarinnar.
Púðaverinu er lokað með tölum svo auðvelt
sé að taka fyllinguna úr og þvo. Hliðarnar
eru saumaðar saman eftir á.
PÚÐI
Heklið 78 ( 99, 99) LL.
1. umf: 1 FL í aðra LL frá nál, SL næstu 2
LL, 5 ST í næstu LL, *SL næstu 2 LL, 2 FL,
SL næstu 2 LL, 5 ST í næstu L; ent frá *
þar til 3 LL eru eftir, 1 FL í síðustu
loftlykkjuna, snúið við.
2. umf: 3 LL, 2 ST á sama stað, 2 FL í
toppinn á næstu skel (sitthvoru megin við
miðju stuðul skeljarinnar), *5 ST á milli
næstu tveggja FL, 2 FL í toppinn á næstu
skel; ent frá * þangað til búið er að hekla í
síðustu skelina, 3 ST í næstu FL (sem er á
endanum), snúið við.
3. umf: 1 LL, 1 FL á sama stað, 5 ST á milli
næstu tveggja FL, *2 FL í toppinn á næstu
skel, 5 ST á milli næstu tveggja FL; ent frá
* að síðustu hálfu skel sem er á endanum,
1 FL í efstu LL af 3 LL í byrjun 2. umf,
snúið við.
Ent umferðir 2 og 3 til skiptis þar til
stykkið mælist 103 (83, 133)cm.
Endið á 3. umf og heklið svo
hnappagataumferð svona:
3 LL, 2 ST á sama stað, 2 FL í toppinn á
næstu skel, *(2 ST, 1 LL, 2 ST) á milli
næstu tveggja FL, 2 FL í toppinn á næstu
skel; ent frá * út umferð, endið á að hekla
3 ST í lykkjuna á endanum.
FRÁGANGUR
Brjótið saman púðaverið þannig að endinn
með hnappagataumferðinni standi 3 cm út
fyrir hinn endann. Saumið hliðarnar og
festið tölur til móts við hnappagötin. Gott
er að festa niður c.a. 4 cm á hvorum enda.
Gangið frá endum. Þvoið púðaverið í
höndum og leggið til þerris í rétt mál.
Hönnun: Edda Lilja Guðmundsdóttir
12 UGLA