BYLGJA
EFNI
Léttlopi – 50 gr dokkur
A 9427 ryðbrúnn
Einband – 50 gr dokkur
B 9990 húðbleikur
Heklunálar nr 3 og 6
HEKLFESTA
10 cm = 10 L í munstri (1 ST, 1 FL) með
heklunál nr 6. Sannreynið heklfestu og
skiptið um nálarstærð ef þarf.
AÐFERÐ
Trefillinn er heklaður í hring með Léttlopa.
Að lokum er heklaður kantur með Einbandi.
TREFILL
Með lit A (Léttlopa) og heklunál nr 6,
heklið 180 LL (mjög laust eða með stærri
heklunál). Tengið saman í hring með KL í
fyrstu LL.
1. umf: Heklið 3 LL, 1 FL, *1 ST, 1 FL; ent
frá * út umf. Tengið með KL í efstu LL af 3
LL í byrjun umf.
2. umf: Heklið 1 LL, 1 ST, *1 FL, 1 ST; ent frá
* út umf. Tengið með KL í LL í byrjun umf.
Endurtakið umferðir 1 og 2 þar til stykkið
mælist 22 cm.
Slítið frá og gangið frá endum.
Blúnda - sjá einnig teikningu
Með lit B (Einband) og heklunál nr 3.
Tengið með KL í einhverja lykkju á kanti
hringtrefilsins.
1. umf: 1 LL, 1 FL í sömu lykkju, 2 FL í
hverja L allan hringinn, lokið umferð með
KL í fyrstu LL umferðar.
2. umf: 6 LL (=1 FL og 5 LL), *SL næstu 2
L, 1 FL í næstu L, 5 LL; ent frá * allan
hringinn, lokið umferð með KL í fyrstu LL
umferðar.
3. umf: 1 KL í næsta LL boga, 3 LL, 6 ST í
sama boga, 1 FL í næsta LL boga, 5 LL, 1 FL
í næsta LL boga, *7 ST í næsta LL boga, 1
FL í næsta LL boga, 5 LL, 1 FL í næsta LL
boga; ent frá * allan hringinn, lokið umferð
með KL í efstu LL af 3 LL í byrjun umferðar.
4. umf: 1 KL í næsta ST, 4 LL, 1 ST, [1 LL,
1 ST]x3, 3 LL, 1 FL í næsta LL boga, 3 LL,
* SL næsta ST, 1 ST, [1 LL, 1 ST]x 4, 3 LL,
1 FL í næsta LL boga, 3 LL; ent frá * allan
hringinn, lokið umferð með KL í þriðju LL
af 4 LL í byrjun umferðar.
Gerið kantinn hinu megin alveg eins.
FRÁGANGUR
Gangið frá endum. Þvoið trefilinn í
höndum og leggið til þerris í rétt mál.
Hönnun: Edda Lilja Guðmundsdóttir
1 HLÍF